Jón Gnarr borgarstjóri hóf sinn annan vinnudag í Breiðholti í morgun á undirbúningsfundi fyrir borgarráð. Hann snæddi síðan hádegisverð á víetnamska veitingahúsinu Viet house í Hraunbergi. Því næst fór borgarstjóri á röltið um nágrennið og kynnti sér fjölbreytta og umfangsmikla starfsemi borgarinnar í Breiðholti. Hann leit við í félagsstarfi aldraðra í Gerðubergi, heimsótti frístundamiðstöðina Miðberg, Breiðholtslaug, Undirheima og íþróttasal ÍR. Hann endaði síðan í Iðjubergi þar sem rekinn er verndaður vinnustaður fyrir fatlaða.