Borgarstjóri hlaut alþjóðleg hvatningarverðlaun Friðarhlaupsins

Íþróttir og útivist

""

“Er ekki friður miklu betri en ófriður?” spurði Jón Gnarr borgarstjóri á opnunarathöfn Friðarhlaupsins í dag í Hljómskálagarðinum.  “Jú!” svöruðu krakkarnir af frístundaheimilum Reykjavíkur í einum kór.  “Og erum við ekki heppin að það er friður á Íslandi?” “Jú!” svöruðu krakkarnir.

Á opnunarathöfninni í dag veitti Salil Wilson, skipuleggjandi alþjóðlega Friðarhlaupsins – Sri Chinmoy Oneness-Home Peace Run, Jóni Gnarr borgarstjóra hvatningarverðlaunin “Kyndilberi friðar – Torch Bearer Award” fyrir einlægan áhuga sinn og þrotlausa vinnu í þágu friðar, en verðlaunin eru veitt einstaklingum sem hafa unnið óeigingjarna vinnu í þágu friðar á ýmsum sviðum.  Jón skipar sér þar með á bekk með fyrri verðlaunahöfum svo sem Desmond Tutu, Vigdísi Finnbogadóttur og Carl Lewis.

“Við getum ekki breytt fortíðinni, en við getum haft mjög mikil áhrif á framtíðina og það er einmitt það sem þið eruð að gera núna,” sagði Jón Gnarr í ræðu sinni og veitti Friðarhlaupurunum dýrmætt veganesti í ferðalagið sem fram undan er. Að því loknu plöntuðu Jón og Salil Wilson, ásamt börnum frá frístundaheimilum í borginni friðartré, en 70 slíkum trjám verður plantað um allt land meðfram hlaupinu.

Friðarhlaupið – Sri Chinmoy Oneness-Home Peace Run hóf 3 vikna ferðalag sitt um Ísland í Reykjavík í dag.  16 hlauparar frá 10 mismunandi löndum munu bera logandi Friðarkyndilinn milli allra sveitarfélaga landsins, en hlaupinu lýkur aftur í Reykjavík 12. júlí. Markmið hlaupsins er að efla vináttu og skilning manna og menningarheima á milli og beina kastljósinu að þeirri einlægu friðarósk sem býr í hjarta hvers manns.

Hlaupið er í yfir 140 löndum um víða veröld í Friðarhlaupinu. Í dag verður hlaupið í Reykjavík og á Seltjarnarnesi, en á morgun verður hlaupið í Kópavog, Garðabæ, Hafnarfirði og á Reykjanesi.