Borgarstjóri hjólaði til góðs

Velferð Íþróttir og útivist

""

Jón Gnarr borgarstjóri hjólaði fyrstu metrana í átakinu Hjólað til góðs sem hófst í dag. Um er að ræða hóp hjólreiðamanna, þar sem Róbert Þórhallsson er fremstur í flokki, sem ætla að hjóla hringinn í kringum landið. Safnað verður áheitum á meðan á ferðinni stendur og rennur ágóðinn til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

Hópurinn kom saman á kaffihúsinu Gæs í Tjarnargötu, þar sem boðið var upp á kleinur og kaffi, og voru allir klæddir eins treyjum merktum átakinu. Að lokinni hressingu hjólaði borgarstjóri með hópnum frá Gæs gegnum Ráðhúsið og út á brúna yfir Tjörnina. Borgarstjóri, hjólaði aðeins áleiðis, en kvaddi svo hópinn með óskum um gott gengi.

Áætlað er að ferðin taki 12 daga, og fyrsti áfangastaður er Skógar.