Borgarstjóri flyst tímabundið í Breiðholtið

Mannlíf

""

Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara mun flytja starfsemi sína tímabundið í Breiðholt. Markmiðið er að borgarstjóri og embættismenn kynnist víðtækri starfsemi borgarinnar í Breiðholti frá fyrstu hendi.

Skrifstofan borgarstjóra og borgarritara mun hefja starfsemi í Gerðubergi frá og með mánudeginum 21. janúar og vera staðsett þar í þrjár vikur eða til 7. febrúar og halda fundi sína þar. Borgarráð mun einnig funda í Breiðholti. Þá mun borgarstjóri gera víðreist í öllum hverfum Breiðholts til að kynna sér starfsemi borgarinnar í þessu fjölmennasta hverfi borgarinnar. Í Breiðholti búa 20.600 íbúar, en þar af er hlutfall innflytjenda 10,2%. Í öðrum hverfum er hlutfall innflytjenda um 8% að meðaltali.

„Ég hef í starfi mínu sem borgarstjóri tekið vaktir með lögreglunni, sorphirðunni, slökkviliðinu og fleirum. Það hefur verið gríðarlega gefandi og fræðandi. Nú ætla ég að prófa að eyða tíma mínum í öðru hverfi. Þetta er merkileg tilraun og ég hlakka til að sjá hvernig til tekst,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.

Borgarstjóri fundar þessar vikurnar með íbúum í hverfum borgarinnar og er fundur áætlaður með íbúum Breiðholts þriðjudaginn 23. janúar í Gerðubergi.