Borgarstjóri fær Jólapeysuna 2013 að gjöf

Mannlíf

""

Ragnheiður Eiríksdóttir, prjónakona og stofnandi Knitting Iceland, afhenti í gær Jóni Gnarr, borgarstjóra, Jólapeysuna 2013 til eignar. 

Jón var ánægður með gjöfina enda klæðist hann gjarnan handprjónuðum flíkum við störf sín sem borgarstjóri. Ragnheiður hannaði peysuna og prjónaði, en Jón klæddist henni í auglýsingum fyrir Jólapeysuna, sem er fjáröflunarátak Barnaheilla. 

Fjáröflunarátak Barnaheilla – Save the Children á Íslandi miðar að því að vekja athygli á mismundandi stöðu barna á Íslandi. Sökum fátæktar geta sum börn ekki tekið þátt í samfélaginu til jafns á við önnur börn. Þau geta ekki stundað tómstundir, tekið þátt í leikjum eða skemmtunum, eða haldið upp á viðburði og áfanga í lífi sínu, svo sem afmæli eða fermingarveislur.  Barnaheill vilja stuðla að jafnræði allra barna á Íslandi burtséð frá fjárhagsstöðu foreldra þeirra.  Þess vegna mun hluti þess fjár sem safnast í jólapeysuátakinu verða varið sérstaklega til slíkra verkefna.
 
Í myndatökunni fyrir auglýsinguna fitjaði borgarstjóri upp á nýrri peysu og byrjaði sjálfur að prjóna. Þetta var upphaf farandpeysunnar sem verður prjónuð af ýmsum þekktum einstaklingum og seld á uppboði í lok átaksins. Peysan verður eins og sú sem Jón fékk afhenta í dag. Með henni mun fylgja skrá yfir þá einstaklinga sem hafa prjónað peysuna.
 
Uppskriftina að peysunni má nálgast í öllum helstu lopasöluverslunum landsins, en nánari upplýsingar er að finna á www.jolapeysan.is. Þar er keppt í áheitum, svipað og gert er í Hlaupastyrk og Mottumars. Á áheitavefnum er hægt að skrá sig til þátttöku, bæði sem einstaklingur og sem hluti af liði, eða jólapeysupartýi.
 
Á Facebook og Instagram verða síðan veitt verðlaun í nokkrum flokkum jólapeysa, svo sem fyrir bestu nördapeysuna, glamúrpeysuna, frumlegustu peysuna, ljótustu jólapeysuna og að sjálfsögðu fyrir fallegustu jólapeysuna 2013.