Borgarstjóri Árósa í opinberri heimsókn í Reykjavík
Jacob Bundsgaard borgarstjóri Árósa kemur í opinbera heimsókn til Reykjavíkurborgar í dag, fimmtudaginn 21. febrúar. Bundsgaard kemur hingað til lands ásamt Niels Højberg, borgarritara.
Bundsgaard mun funda með Jóni Gnarr borgarstjóra og Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs, síðdegis í dag. Á morgun, föstudaginn 22. febrúar, fara Bundsgaard og Højberg ásamt fulltrúum menntaráðs í heimsókn á leikskólann Rauðhóla, sem er einn af stærstu leikskólum Reykjavíkur. Að lokinni leikskólaheimsókninni verður haldinn fundur í Gerðubergi þar sem rætt verður um aðgerðir sveitarfélagsins í Árhúsum við samruna leik- og grunnskóla.
Þá býður Reykjavíkurborg Bundsgaard og Højberg til kynningar á aðgerðaráætlun borgarinnar vegna fjármálakreppunnar og afleiðinga hennar.
Á laugardeginum verður farið í skoðunarferðir að Gullfossi og Geysi.
Borgarstjóri Árhúsa fer af landi brott á sunnudag.