Borgarráð samþykkir nýtt deiliskipulag fyrir Landsímareit

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag nýtt deiliskipulag fyrir Kvos – Landsímareit með sex atkvæðum gegn einu. Um er að ræða tillögu ASK arkitekta að breyttu deiliskipulagi á Landsímareitnum svokallaða sem afmarkast af Aðalstræti, Vallarstræti, Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti. Tillagan byggir á vinningstillögu í alþjóðlegri samkeppni en skipulagsvinna við reitin hefur staðið árum saman.

Gömlu húsin á reitnum fá öll að halda sér, en þau standa við Aðalstræti 7, Vallarstræti 4 og Thorvaldsensstræti 2. Fyrra deiliskipulag frá 1987 heimilaði niðurrif allra húsanna.

Samkvæmt deiliskipulaginu eru nýbyggingar við Vallarstræti lækkaðar og fjölnota samkomusalur kemur í stað salar sem kenndur hefur verið við NASA. Endurbyggði salurinn á að taka mið af hinum fyrri, skv. skipulaginu.

Við Vallarstræti verða byggð ný hús sem tengjast eldri húsunum á reitnum. Nýbygging við Kirkjustræti verður með risi og kallast á við eldri hús á þessu svæði. Hægt verður að ganga á milli Ingólfstorgs og Víkurgarðs í gegnum port. Gamla Landsímahúsið hækkar lítillega en á það verður sett svokallað mansard þak með kvistum, líkt og á Hótel Borg hinum megin við Austurvöll. Þá er yngra Landsímahúsið við Thorvaldsensstræti 6 hækkað úr fimm hæðum í sex að hluta til.