Bollar í tugatali fyrir kaffihúsið GÆS

Velferð Mannlíf

""

Stöðugur straumur fólks lá í Ráðhús Reykjavíkur í dag til þess að gefa kaffihúsinu GÆS bolla sem nota á í kaffihúsinu þegar það opnar í Tjarnarbíói í júní. Að kaffihúsinu standa nemendur í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun í Háskóla Íslands. Hugmyndin að GÆS varð til hjá nemendunum í diplómanáminu sem  vilja með þessu framtaki leggja sitt að mörkum til að auka fjölbreytni í atvinnutækifærum  fatlaðs fólks. Nemendur í kaffihúsahóp eru: Gísli Björnsson, Lára Steinarsdóttir, María Þ. Hreiðarsdóttir, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir og Unnur Jónsdóttir. Þau fengu þá snilldarhugmynd að leita til almennings eftir borðbúnaði fyrir kaffihúsið.

Þau Gísli, Lára, María, Unnur og Steinunn Ása höfðu vart undan í dag við að taka á móti bollum, undirskálum, tekrúsum og sumir komu með sparistell og gáfu þeim. Á einum klukkutíma voru öll borð full af borðbúnaði af öllum stærðum og gerðum og sagði Steinnunn Ása að hún væri hrærð yfir því hversu margir væru að koma með bolla. „Þetta er æðislegt, og miklu meira en við þorðum að vona. Við erum svo þakklát!!“, sagði Steinunn glöð í bragði.

Nafnið á kaffihúsinu er GÆS, samanstendur af einkunnarorðum hópsins sem eru GET- ÆTLA-SKAL, en ekki síður er það vísun í umhverfi kaffihússins og fuglalífið við tjörnina. GÆS verður staður sem allir geta heimsótt, staður tækifæra, hugmynda, huggulegheita, umburðarlyndis og samfélags þar sem gert er ráð fyrir öllum. Verkefnið byggir á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og á félagslegum skilningi á fötlun. Lögð verður áhersla á að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín og manngerðum hindrunum í samfélaginu rutt úr vegi. Kaffihúsið verður staðsett í Tjarnarbíói við Reykjavíkurtjörn í sumar með möguleika á áframhaldi ef vel gengur. Reykjavíkurborg óskar þessum framtakssömu ungmennum góðs gengis við kaffihúsareksturinn.