Í tilefni 50 ára afmælis Sólheimasafns verður farið í bókmenntagöngu um Heima- og Vogahverfi laugardaginn 11. maí. Lagt er af stað frá Sólheimasafni, Sólheimum 27 kl. 13:30.
Fjallað verður um og lesið úr verkum skálda og listamanna sem eru búsettir í hverfinu eða hafa búið þar um langa hríð. Skáldin Einar Már Guðmundsson, Olga Guðrún Árnadóttir og Salka Guðmundsdóttir munu mæta í gönguna og lesa úr verkum sínum.
Áætlað að ganga taki ríflega klukkustund. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti á bókasafninu að göngu lokinni og eru allir velkomnir.