Þessa dagana er verið að kynna læsisstefnu leikskóla og lestrarstefnu grunnskólanna í hverfum borgarinnar. Markmið fundanna er m.a. að stuðla að samstarfi í hverfum um mál og læsi til að tryggja meiri samfellu í námi barna. Auk kynninga á stefnuplöggum kynna skólar og frístundamiðstöðvar áhugaverð þróunarverkefni sín um læsi, verkefni sem á einhvern hátt tengjast málörvum og/eða læsi í víðum skilningi.
Mánudaginn 28. okt. var kynningarfundur haldinn í Hamraskóla fyrir Grafarvog. Þar kynntu Guðrún Edda Bentsdóttir nýja lestrarstefnu grunnskóla og Fríða Bjarney Jónsdóttir læsisstefnu leikskóla, Lesið í leik. Þá kynntu fulltrúar leikskólans Bakkabergs og Kelduskóla áhugavert samstarfsverkefni um fjöruna, verkefni sem fór fram víðs vegar í Grafarvogshverfi og tengdi skemmtilega saman fagstarf á tveimur skólastigum. Að kynningu lokinni urðu umræður um margvíslega möguleika á þverfaglegu samstarfi skóla og frístundastofnana í Grafarvogi.
Fundirnir eru einnig hugsaðir til þess að auðvelda skólunum að setja sér sameiginleg markmið um að efla málþroska og læsi eins og skóla- og frístundaráð hefur samþykkt.
Fulltrúar allra skólastjórnanda og kennara yngstu bekkjanna koma á hverfafundina..Þar eru einnig einnig fulltrúar stjórnenda í leikskólum, deildarstjórar elstu barnanna á leikskólum, deildarstjórar barnastarfs á frístundamiðstöðvum og verkefnisstjórar frístundaheimila.
Næstu kynningarfundir verða;
Þriðjud. 29. okt. kl. 14:30 – 16:00 - Fellaskóli
Miðvikud. 30. okt. kl. 14:30 – 16:00 - Norðlingaskóli
Miðvikud. 6. nóv. kl. 14:30 – 16:00 – Félagsmiðstöðin Hæðargarður