Bláum tunnum fjölgar ört

Umhverfi

""

Pappírsflokkun gengur vel í Reykjavík og sífellt fleiri heimili panta bláu tunnuna til að losa sig við pappírinn. Í dag eru um 5.200 bláar tunnur í Reykjavík og hefur þeim fjölgað vel yfir 2.000 síðan í ágúst.

Sorpa gerði greiningu á heimilissorpi í nóvember 2012 og hafði þá hlutur pappírs í heimilissorpi dregist saman um 3% frá 2011 - úr 23% í 20%. Markmiðið er að ná öllum pappír sem leggst til á heimilinum til endurvinnslu. Þegar könnunin var gerð var pappírsflokkun rétt að hefjast í Reykjavík.

Átakið Pappír er ekki rusl á vegum Reykjavíkurborgar gengur samkvæmt áætlun en í febrúar hófst flokkun pappírs frá heimilissorpi í Breiðholti sem er stærsta hverfi borgarinnar.

Bláa tunnan kostar aðeins 542 krónur á mánuði eða 6.500 krónur á ári. Með því að flokka allan pappír frá heimilissorpinu geta heimili sparað sér veruleg sorphirðugjöld. Umfang venjulegs heimilissorps minnkar þegar pappírinn er flokkaður frá og því er auðvelt að skipta út grárri tunnu sem tæmd er á 10 daga fresti og fá í staðinn græna tunnu sem tæmd er á 20 daga fresti.

Dæmið lítur svona út:

• Grá tunna + blá tunna = 25.100 kr. 

• Græn tunna + blá tunna = 15.800 kr.

• Mismunur = 9.300 kr

Reykjavíkurborg býður íbúum upp á talsvert val varðandi pappírsflokkun og hirðu. Bláu tunnunni er því ekki dreift sjálfvirkt til allra heimila heldur þurfa íbúar að panta hana. Hún er síðan afhent innan tveggja daga.

Heimilin í borginni eru ekki skyldug til að fá sér bláa tunnu því einnig er boðið upp á þann möguleika að íbúar skili pappírnum  á grenndarstöðvar sem er víða að finna í borginni.

Helsta breytingin á sorphirðunni er sú að eftir innleiðingu pappírsflokkunar verður óheimilt að setja endurvinnanlegan pappír í tunnur fyrir venjulegt heimilissorp. Einnig er óheimilt að setja skilaskyldar umbúðir í heimilissorpið en talið er að 12 milljónir skilagjaldskyldra umbúða fari í ruslið á höfuðborgarsvæðinu.  Í áðurnefndri könnun Sorpu kom í ljós að hlutfall áldósa og glers í heimilssorpi jókst en hlutfall plasts minnkaði. Þá er einnig óheimilt að setja garðaúrgang, rafhlöður og spilliefni í heimilissorpið.

Í bláu tunnuna má setja allan endurvinnanlegan pappír: Dagblöð, prentpappír, karton, fernur, tímarit, bylgjupappír og allan almennan umbúðapappír.

Íbúar eru einnig hvattir til að flokka plastumbúðir frá heimilissorpinu og setja í grenndargáma.  Árið 2012 söfnuðust 46 tonn af plasti á 53 grenndarstöðvum og 1.204 tonn af pappír. Í fyrra söfnuðust 1.118 tonn af pappír í bláu pappírstunnuna í Reykjavík en árið 2011 söfnuðust 928 tonn. Aukningin nam 17% en þá var blátunnuvæðing vart hafin.

Tölurnar sýna að Reykvíkingar hafa tekið vel við sér varðandi flokkun á sorpi og verður að sögn sorphirðu borgarinnar spennandi að sjá hver aukningin verður þegar átakið Pappír er ekki rusl hefur verið framkvæmt í öllum hverfum borgarinnar.

Pappír er ekki rusl