Blak- og púttvöllur

Íþróttir og útivist Menning og listir

""

Nú á dögunum var sett upp blaknet á blakvöllinn við sundlaug Vesturbæjar. Við hvetjum fólk til að vera duglegt að nota völlinn, því þá er aldrei að vita nema við getum hvatt borgina til að setja upp strandblaksvöll sem er með sandi. Einnig hvetjum við fólk til þess að vera duglegt að nota púttvöllinn sem stendur einnig við sundlaugina, en það er fínn völlur fyrir unga sem aldna og góð leið til að æfa púttinn fyrir stóra völlinn.

Sem sagt, við hvetjum alla til að nýta sér þessa aðstöðu og er þetta tilvalin leið að hreyfa sig, fyrir eða eftir sundið.