Skráning er nú hafin á Öskudagsráðstefnu 2013 sem ætluð er grunnskólakennurum í Reykjavík. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Betri í dag en í gær. Tveir erlendir fyrirlesarar Geoff Hannan, breskur skólamaður og ráðgjafi á sviði skólamála og Josef Huber frá menntastofnun Evrópuráðsins, verða með erindi á ráðstefnunni. Geoff Hannan fjallar um það hvernig drengir og stúlkur hugsa og læra á mismunandi hátt og hagnýtar leiðir sem gagnast hafa vel til að bæta árangur drengja í námi. Josef Huber fjallar um hvernig daglegt líf er samofið lýðræðismenningu og mikilvægi kennarans sjálfs í að koma breytingum til leiðar í daglegu starfi. Ráðstefnan sem sem haldin hefur verið árlega á öskudegi síðan árið 2003, er skipulögð af skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar í samstarfi við Félag skólastjórnenda í Reykjavík og Kennarafélag Reykjavíkur.
Ráðstefnan verður í Gullhömrum við Þjóðhildarstíg 2, kl. 13.00 - 16.45.
Dagskrá:
13.00 Setning ráðstefnu - Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri SFS
13.10 Tónlistaratriði – Kór Hamraskóla - Björgvin Þór Valdimarsson stjórnar
13.20 Gender Strategies for Improving Teaching and Learning - Geoff Hannan
14.40 Kaffihlé
15.10 Learning Democracy – Pedagogy Makes the Difference - Josef Huber
16.00 Samantekt – Rósa Ingvarsdóttir, kennari
16.15 Ráðstefnuslit - Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs
Ráðstefnustjóri: Auður Árný Stefánsdóttir, skrifstofustjóri á fagskrifstofu SFS
U fyrirlesarana og efni fyrirlestranna
Gender strategies for improving teaching and learning – Geoff Hannan
Geoff Hannan er breskur skólamaður sem hefur rekið eigið ráðgjafarfyrirtæki á sviði skólamála, í rúm 35 ár. Hann hefur unnið með fjölda skóla, framhaldsskóla og háskóla víða um heim að því að efla nám og kennslu. Hann byggir aðferðir sínar á starfi á vettvangi kennara og nemenda og bendir á þær leiðir sem gefa bestan árangur í námi og kennslu.
Í fyrirlestri sínum mun hann fjalla um hvernig drengir og stúlkur hugsa og læra á mismunandi hátt. Að auki kynnir hann hagnýtar leiðir sem reynst hafa gagnast sérstaklega varðandi árangur drengja í námi. Á ráðstefnunni verður hægt að kaupa eina af vinsælustu bókum hans, „Outstanding Teaching“ ásamt ýmsu öðru efni á rafrænu formi, sem nýta má í kennslu.
Learning democracy – Pedagogy makes the difference – Josef Huber
Josef Huber starfar hjá menntastofnun Evrópuráðsins og hefur nú umsjón með eflingu lýðræðislegrar þátttöku og fjölmenningalegrar áherslu – Pestalozzi áætlunin. Hjá Evrópuráðinu hefur hann einnig tekið þátt í störfum er varða æðri menntun og rannsóknir og bar hann til dæmis ábyrgð á skipulagi tveggja málþinga, um stjórnun í háskólum (2005) og um ábyrgð æðri menntastofna varðandi menningu í lýðræðissamfélögum (2006).
Á árunum 1998 til 2004 var Josef forstöðumaður Evrópumiðstöðvar um nútíma tungumál og sá um gerð framkvæmdaáætlunar rannsókna, þróunarverkefna og útgáfu á ritraðar um tungumálanám og kennslu , fjölmenningarleg samskipti og stefnu í kennslu tungumála. Hann vann einnig að stefnu um þróun tungumálakennslu fyrir austurríska menntamálaráðuneytið á árunum 1992 – 1998 en fyrir þann tíma kenndi hann tungumál í grunnskólum og háskólum bæði í Austurríki og erlendis.
Almennt er það viðurkennt að það er mikilvægt að undirbúa börn, ungmenni og fullorðna undir líf sem lýðræðisþegnar í samfélagi sem ekki aðeins hefur lýðræðislegar stofnanir heldur þar sem daglegt líf er samofið lýðræðismenningu. Í dag getum við ekki sagt að það sé almennur veruleiki
Á liðnum áratugum hafa áherslur menntunar og skólamála fremur beinst að því hvað kennsla eigi að innihalda fremur en hvernig haga skuli kennslu. Í fyrirlestri sínum mun Josef draga fram mikilvægi uppeldisfræða og þá staðreynd að í raun eru það kennararnir sjálfir, í sinni daglegu kennslu, sem koma breytingum til leiða.