Hátt í 600 reykvískir grunnskólakennarar munu á öskudag sitja fagráðstefnu undir yfirskriftinni Betri í dag en í gær. Hún verður haldin í Gullhömrum við Þjóðhildarstíg og hefst kl. 13.00. Tveir erlendir fyrirlesarar; Geoff Hannan, breskur skólamaður og ráðgjafi á sviði skólamála og Josef Huber frá menntastofnun Evrópuráðsins, verða með erindi á ráðstefnunni.
Geoff Hannan fjallar um það hvernig drengir og stúlkur læra á ólíkan hátt og segir frá hagnýtum leiðum sem gagnast hafa vel til að bæta árangur drengja í námi.
Josef Huber fjallar um hvernig lýðræðismenning og fjölmenningarlegar áherslur eru samofin daglegu lífi og mikilvægi kennarans í að koma breytingum til leiðar.
Ráðstefnan sem sem haldin hefur verið árlega á öskudegi síðan árið 2003, er skipulögð af skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar í samstarfi við Félag skólastjórnenda í Reykjavík og Kennarafélag Reykjavíkur.