Hugmyndir að stórum og smáum verkefnum í hverfum Reykjavíkurborgar hafa streymt inn á undirvefinn Betri hverfi á samráðsvefnum betrireykjavik.is að undanförnu. Þar hafa nú safnast yfir 300 hugmyndir sem ætlað er að bæta hverfi borgarinnar. Íbúar í Vesturbæ hafa verið langduglegastir að setja hugmyndir inn á vefinn en Breiðholt fylgir fast á eftir Vesturbæjar hvað snertir hugmyndaauðgi.
Íbúar í Hlíðum, Grafarholti og Úlfarsárdal og Árbæ hafa hins vegar verið seinir að taka við sér en þar eru langfæstar hugmyndir komnar inn. Þann 10. febrúar voru aðeins 14 hugmyndir að verkefnum komnar inn á vefinn fyrir Árbæjarhverfi, aðeins 15 fyrir Árbæ og 19 fyrir Hlíðar. Það er afar lítið sé miðað við Vesturbæ þar sem íbúar höfðu sett inn 61 hugmynd.
Enn er hægt að setja inn hugmyndir á vefinn en nú er tæp vika þar til kerfinu verður lokað fyrir innsetningu hugmynda en það verður gert föstudaginn 15. febrúar nk. Eru íbúar hvattir til þess að nýta sér vefinn og koma með hugmyndir að góðum verkefnum sem bæta hverfin.
Meðal hugmynda sem íbúar hafa áhuga á að koma í framkvæmd má nefna golfvöll við Suðurlandsbraut, sleðabrekku neðan Áskirkju, körfuboltavöll við Fossvogsveg, sparkvöllur við Engjaskóla, hundagerði í Norðlingaholti, svo eitthvað sé nefnt.
Fagteymi skipað af Reykjavíkurborg hefur fylgst með þeim hugmyndum sem settar eru á vefinn. Það fer yfir hugmyndirnar og kostnaðarmetur þær. Þriggja manna íbúanefndir, sem skipaðar voru á íbúafundum borgarstjóra, munu hafa hönd í bagga með því hvaða hugmyndum verður stillt upp til rafrænna íbúakosninga sem haldnar verða dagana 14. - 19. mars nk. ásamt fulltrúum hverfisráða í Reykjavík.
Frestur til að skila inn hugmyndum rennur út 15. febrúar nk. eins og áður sagði. Hægt er að setja inn hugmyndir hér.