Betri hverfi

Umhverfi Mannlíf

""

Jón Gnarr borgarstjóri mun funda með íbúum í öllum hverfum borgarinnar í tengslum við verkefnið Betri Hverfi. Farið verður yfir verkefni síðasta árs og óskað eftir hugmyndum að nýjum verkefnum til að bæta íbúahverfin í Reykjavík auk þess sem óskað verður eftir samráði við íbúa um eftirfylgni verkefna.

Vesturbæingar geta haft áhrif á sitt hverfi með því að mæta á fund í Hagaskóla fimmtudaginn 17. janúar kl. 17.00.