Best fyrir barnafólk að búa í Reykjavík

Betri hverfi Velferð

""

Gjaldskrár fyrir skólaþjónustu hækka um 5.70% að meðaltali í Reykjavík á næsta ári samkvæmt frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2014. Þrátt fyrir hækkanir verður Reykjavík ennþá með umtalsvert lægri gjaldskrár fyrir barnafólk en stærstu sveitarfélögin og er þá miðað við gjaldskrár sveitarfélaga fyrir þetta ár 2013 en reikna má með að önnur sveitarfélög hækki gjaldskrár sínar fyrir næsta ár.

Í nokkrum dæmum sem fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur tekið saman og tekur mið af algengum fjölskyldustærðum er kostnaður barnafólks í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum reiknaður út eftir hækkanir á gjaldskrám í Reykjavík. Í eftirfarandi dæmum er miðað við gjaldskrár Reykjavíkurborgar 2014 en gjaldskrár annarra sveitarfélaga 2013. Gjaldskrár Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Seltjarnaness, Mosfellsbæjar og Akureyrar eru bornar saman.



Dæmi 1

Fjölskylda með tveimur fullorðnum og þremur börnum. Tvö sækja leikskóla en eitt grunnskóla og frístundaheimili. Ársútgjöld þessarar fjölskyldu vegna skólaþjónustu verða rúmar 569 þúsund krónur í Reykjavík en eru tæpar 833 þúsund krónur hjá því sveitarfélagi sem er með hæstu gjaldskrána. Munurinn er 264 þúsund krónur. Öll helstu sveitarfélög landsins eru umtalsvert hærri.

Dæmi 2

Fjölskylda, tveir fullorðnir með tvö börn, eitt í leikskóla og eitt í grunnskóla sem sækir frístundaheimili.

Þessi fjölskylda greiðir tæpar 492 þúsund fyrir þjónustuna í Reykjavík en  tæpar 628 þúsund hjá því sveitarfélagi sem er hæst í þessu dæmi. Hér munar tæpum 136 þúsund krónum. Hér er munurinn minni á milli sveitarfélaga en öll hin sveitarfélögin eru hærri en Reykjavík.

Dæmi 3

Hér er fjögurra manna fjölskylda, einn fullorðinn, tvö leikskólabörn og eitt grunnskólabarn sem sækir frístundaheimili. Sömu þjónustugjöld greiða námsmenn þar sem báðir foreldar eru í námi svo og öryrkjar.

Í Reykjavík greiðir þessi fjölskylda tæpar 416 þúsund krónur á ári í þjónustugjöld en tæpar 786 þúsund krónur hjá því sveitarfélagi sem er með hæstu gjaldskrána. Munurinn er 370 þúsund krónur. Öll hin sveitarfélögin eru hærri en Reykjavík.

Dæmi 4

Hér er kostnaður fimm manna fjölskyldu reiknaður út, tveir fullorðnir, eitt leikskólabarn og tvö í grunnskóla sem einnig sækja frístundaheimili.

Í Reykjavík greiðir þessi fjölskylda tæpar 589 þúsund krónur í þjónustugjöld á næsta ári en tæpar 787 þúsund krónur hjá því sveitarfélaginu sem er með hæstu þjónustugjöldin. Munurinn er 198 þúsund krónur. 

Öll hin sveitarfélögin eru hærri en Reykjavík. Þess má geta að Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið sem býður upp á þau kjör að foreldrar borga aldrei fyrir fleiri en tvö börn í skólamötuneytum grunnskólanna sem kemur barnmörgum fjölskyldum vel.

Afrit af fjölskuldudæmum, breytingum og samanburði við önnur sveitarfélög. 

Gjaldskrár 2014.