Barnalist í Tjarnarborg kveikja fyrir listnema
Listnemar við Listaháskóla Íslands og listfræðingar sóttu sér á dögunum andagift í listaverk barnanna í Tjarnarborg. Elstu börnin í leikskólunum voru fengin í skemmtilegt samstarfsverkefni sem fólst í því að hvert leikskólabarn lánaði listnema eitt verka sinna sem kveikju að öðru listaverki.
Verk barnanna voru afar ólík, hvort heldur í myndefni, efnivið eða útfærslu. Listnemarnir völdu sér eitt verkanna og unnu áfram með það eða notuðu það sem viðmið í annað verk. Afrakstur þessa skemmtilega samstarfsverkefnis varð að sýningu sem sett var upp í myndlistagalleríinu Artímu.
Sýningin stendur til 9. mars en yfirskrift hennar er List að læra.