Barnadjass og babbaddíbú í Ævintýrahöllinni
Leikskólabörn skemmtu sér konunglega á djassskemmtun í Iðnó í morgun og fengu alveg nýja tilfinningu fyrir takti og samspili. Sprellikarlinn Orri Huginn fór fyrir hljómsveitinni og leiddi börnin inn í töfraveröld djasstónlistarinnar.
Það var babbaddí-búað og bibbidídúað á djassskemmtuninni þar sem leikin voru íslensk og erlend dægurlög sem börnin kunnu og gátu því tekið þátt í flutningnum með því að taka við tónum og takti ýmist frá söngvara eða hljóðfæraleikurum. Sumir áttu erfitt með að sitja kyrrir undir dillandi djasstónunum og tókust á loft sem þaulreyndir djassgeggjarar í hoppudansi.
Auk Orra Hugsins var hljómsveitin skipuð Hauki Gröndal á saxafón, Pétri Grétarssyni á trommur og slagverk og Valdimar Kolbeini Sigurðssyni á bassa.
Á morgun verða aðrir djasstónleikar í Ævintýrahöllinni í Iðnó fyrir börn og fullorðna.
Meira um dagskrá barnamenningarhátíðar á www.barnamenningarhatid.is.