Sú skemmtilega hefð hefur skapast í Viðey að einu sinni á ári er einn dagur helgaður börnum í eyjunni. Sunnudaginn 28. júlí verður Barnadagur og þá verður gert það sem börnum finnst skemmtilegast; að leika sér!
Í Viðey eru fallegar fjörur og hvað er meira viðeigandi en að nota þær til þess að leika sér? Addý frá „Allt er hægt - náttúruupplifun“ ætlar að taka á móti börnum og fjölskyldum þeirra í fjörunni fyrir neðan Naustið. Þar verður hægt að leika sér með allar þær gersemar sem eru í fjörunni og ýmislegt skemmtilegt verður brallað og rannsakað. Það er tilvalið að taka með sér sigti eða háf, skóflur og fötur.
Skátarnir úr Landnemunum koma út í eyju og fara í alls konar leiki með krökkunum. Hestarnir í Viðey eru miklir barnahestar og allir sem vilja geta fengið að fara á hestbak og svo er aldrei að vita nema að við rekumst á forvitna trúða sem ætla að koma út í eyju að skoða sig um og heilsa upp á krakkana.
Þeir sem vilja eiga rólega og notalega stund með fjölskyldu sinni geta sest með Arnbjörgu Kristínu jógakennara sem er algjör snillingur í barnajóga. Hún ætlar að koma með gítarinn sinn og gongið og leiða börnin og fjölskyldur þeirra í skemmtilegu jóga. Það má alveg hlæja og hafa gaman í jóganu hennar Arnbjargar.
Í fallegu litlu Viðeyjarkirkju ætlum við að halda fjöruga barnamessu og í henni verður sungið, sagðar sögur, farið í leiki og spilað á gítar.
Hinir óborganlegu Bjarni og Jóakim úr Sirkus Íslands ætla að koma í lok dags og skemmta okkur með stórhlægilegu atriði sem bæði fullorðnir og börn hafa gaman af!
Ferska sjávarloftið í Viðey eykur svo sannarlega matarlystina en það fer enginn svangur heim því kokkarnir í Viðeyjarstofu verða með stórt grill þar sem hægt verður að kaupa grillaðar pylsur allan daginn og allir sem vilja fá gefins ís.
Dagskráin hefst kl. 12.15 og lýkur kl. 16:00 og ferjurnar ganga frá Skarfabakka yfir sundið á klukkustundar fresti allan daginn.
Við bjóðum öll börn og fjölskyldur þeirra hjartanlega velkomin!
Dagskrá dagsins
12:15-16:30 Grillaðar pylsur og ís við Viðeyjarstofu.
12:15-14:45 Forvitnir og skemmtilegir trúðar frá Götuleikhúsinu skoða sig um í eyjunni og heilsa upp á krakkana.
12:30 -14:30 Skátarnir Landnemar fara í leiki með krökkunum.
12:30-13:30 Fjölskyldujóga með Arnbjörgu Kristínu Konráðsdóttur jógakennara. Hún fer leiki, spilar á gítar og gong.
12:30-15:00 Fjörufjör með Addý frá „Allt er hægt“ náttúruupplifun. Hvetjum alla til að koma með háfa, net, skóflur, fötur og hvaðeina sem gaman er að nota í fjörunni.
13:00-15:00 Hestar teymdir undir börnum.
15:00-15:30 Fjörug barnamessa í Viðeyjarkirkju með sögum, leikjum og söng.
15:30-16.00 Bjarni og Jóakim frá Sirkus Íslands sprella eins og þeim einum er lagið með atriði sem bæði foreldrar og börn hafa gaman af!