Bætt aðgengi að fjörum og betri leiksvæði í Vesturbænum

Umhverfi Skipulagsmál

""

Betri róluvellir, aðgengi að fjörum og aðgengi gangandi og hjólandi eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Vesturbæ völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval Betri hverfa í fyrra. Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.

Óskir íbúa í Vesturbænum beinast þannig einkum að bættu umhverfi og útivistarmöguleikum, en einnig völdu þeir betri jólaskreytingar.  

Óskaverkefnin sem unnin voru í Vesturbænum eru þessi:

  1. Róluvöllur við Nýlendu- og Vesturgötu var endurbættur en skipulag gerir ráð fyrir götu á þessum stað.

     
  2. Hönnun að endurbættu dvalarsvæði við Aflagranda 40 liggur fyrir og búið er að kaupa ný leiktæki sem sett verða upp þegar aðstæður leyfa.

     
  3. Stærri ruslastampur var settur við strætóskýlið hjá Háskóla Íslands.

     
  4. Búið er að hanna lagfæringar á fótboltavelli og leiksvæði við Reynimel 68 – 74, kaupa ný leiktæki og girðingarefni og verður haldið áfram með framkvæmdir þegar aðstæður leyfa.

     
  5. Umferðaröryggi við Melaskóla var bætt með uppsetningu stöpla eða staura til að hindra að lagt sé upp á stéttum. Aðgerðin er til bráðabirgða en sett hefur verið fram til skoðunar hugmynd um girðingu á skólalóðina á þessum stað.

     
  6. Lynghagaróló var endurbættur. Sandur var settur í kassann, sem og nýtt malarlag á fótboltavöllinn og tyrft í kring.

     
  7. Hjólabraut á Öldukotsróló var hellulögð.

     
  8. Hönnun á leikaðstöðu á Landakotstúni liggur fyrir. Leiktæki hafa verið keypt og haldið verður áfram með framkvæmdir þegar aðstæður leyfa. 

     
  9. Jólaskreytingar voru settar upp í Vesturbænum fyrir jólin.

     
  10. Aðstaða fyrir börn í garðinum við Vesturbæjarsundlaug var bætt. Sett voru upp leiktæki og umhverfið fegrað með gróðursetningu trjáplantna.

     
  11. Aðgengi að fjöru við Eiðsgranda var bætt með stiga niður í fjöru.

     
  12. Aðgengi að í fjöru í Skerjafirði var bætt með gerð stiga.

     
  13. Aðgengi gangandi og hjólandi við Mýrargötu og Fiskislóð var bætt. Gerð var gönguleið yfir Mýrargötu við hringtorgið og önnur akbraut Mýrargötu þrengd til að auka umferðaröryggi.

     
  14. Settar voru upp körfuboltakörfur á svæði KR

     
  15. Umhverfi við Hofsvallagötu sunnan við Einimel var fegrað með gróðursetningu trjáplantna.

     
  16. Útivistaraðstaða á grænu svæði við Brekkustíg 14b var bætt í samráði við íbúa nærliggjandi húsa.

     
  17. Nestisbekkir voru settir á tvo áningarstaði við  Ægisíðu.

 

Heildarkostnaður framkvæmda við verkefni Betri hverfa í Vesturbæ árið 2012 var um 37  milljónir króna og verður framkvæmdfé óbreytt í ár.  Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.

Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum nú í janúar í öllum hverfum um verkefnið Betri hverfi. Fundað verður um málefni Vesturbæjar í Hagaskóla fimmtudaginn 17. janúar kl. 17.