Margrét Hrafnsdóttir og Ave harmonikkuleikari flytja einungis verk eftir konur. Á efnisskránni er frumflutningur eftir Ingibjörgu Guðlaugsdóttur en einnig verða verk flutt eftir Hafdísi Bjarnadóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur og Ingunni Bjarnadóttur.
Það kostar 2.700 krónur á tónleikana og sigling með ferjunni er innifalin. Miðasala fer fram á midi.is.
Veitingasalan í Viðeyjarstofu verður opin og kjörið að gæða sér á góðgæti á meðan hlustað er á þessar kláru tónlistarkonur.
Ferjan siglir frá Skarfabakka við Sundhöfn kl. 19.15 og til baka að tónleikum loknum.