Auglýst eftir umsóknum um þróunarstyrki til skóla- og frístundastarfs

Skóli og frístund

""

Auglýstir eru til umsóknar styrkir úr þróunarsjóði skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur fyrir árið 2014. Við úthlutun styrkja verður sérstaklega horft til verkefna sem miða að því að efla fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf.

Leitað er eftir verkefnum sem:

  • Aukið geta tækifæri barna með annað móðurmál en íslensku til meiri árangurs í námi.
  • Hafa það að markmiði að efla þekkingu og færni starfsfólks á vettvangi til að vinna með fjölbreyttan hóp barna t.d. með aukinni ráðgjöf og stuðningi.
  • Bjóða upp á fjölbreyttar leiðir til að nýta í frístundastarf í því skyni að efla félagsfærni og íslenskukunnáttu barna sem eru að læra íslensku sem annað tungumál.

Þrátt fyrir að áhersla sé lögð á fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf eru starfsstaðir skóla- og frístundasviðs hvattir til að sækja um fyrir önnur verkefni en ofangreind fyrir öflugra skóla- og frístundastarf í Reykjavík. 

Þróunarstyrkjum skóla- og frístundaráðs er úthlutað árlega í samræmi við þær áherslur sem settar eru í starfsáætlun sviðsins. Markmið þeirra er að styðja við ýmis verkefni sem stuðla að nýjungum, rannsóknum eða nýbreytni í uppeldis- og skólastarfi leikskóla, grunnskóla og í frístundastarfi.

Frekari upplýsingar um reglur og umsóknir veita Auður Árný Stefánsdóttir, Hildur Skarphéðinsdóttir, Soffía Pálsdóttir skrifstofustjórar fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs.

Umsóknir skulu hafa borist skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12, í síðasta lagi 15. október 2013 á þar til gerðum eyðublöðum.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér til hægri.