Atvinnutorg, samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og velferðaráðuneytis, er úrræði fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-24 ára.
Meginmarkmið Atvinnutorgsins er að styðja ungt fólk með litla starfsreynslu út í atvinnulífið en ungmennin koma til Atvinnutorgs í gegnum Vinnumálastofnun eða ráðgjafa þjónustumiðstöðva í hverfum borgarinnar. Fyrsta starfsár torgsins sýnir svo ekki verður um villst að það er að skila árangri og fleiri ungmenni fara í starf eða nám í gegnum Atvinnutorg en ella.
Atvinnutorg var tilnefnt af Norrænu ráðherranefndinni sem eitt þriggja verkefna frá Íslandi til að kynna verkefni sitt á stórri atvinnumálaráðstefnu í Stokkhólmi á liðnu vori. Á ráðstefnunni var aðaláherslan lögð á ungt fólk í atvinnuleit. Það voru þrír starfsmenn torgsins sem stóðu vaktina í kynningarbás þar sem þau kynntu Atvinnutorg persónulega m.a. fyrir ráðherrum allra Norðurlandanna.
Þarna komu þrjú áhugaverð verkefni frá hverju Norðurlandanna og því var það ekki einungis Atvinnutorg sem kynnt sitt starf heldur gafst þarna kjörið tækifæri til að kynna sér það besta sem verið er að gera í nágrannalöndum okkar. Frá Íslandi voru auk Atvinnutorgs, Fjölsmiðjan og verkefnið Nám er vinnandi vegur.
Skipulag ráðstefnunnar var með því móti að þangað mættu forsætisráðherrar og vinnumarkaðsráðherrar allra Norðurlandanna til að taka þátt í opnum umræðum um atvinnumál ungs fólks auk þess að hlíða á fyrirlestra sérfræðinga um hvað er að gerast í málaflokknum.
Það sem vakti helst athygli frændþjóðanna var að Atvinnutorg beinir sjónum sínum sérstaklega að ungu fólki án bótaréttar og því að við bjóðum þeim að mæta 2-5 sinnum í viku og vinna í sínum málum. Það er einmitt tíð mæting á Atvinnutorg sem er stór þáttur í velgengni þeirra sem þangað sækja.
Þátttaka Atvinnutorgs í ráðstefnunni var fyrst og fremst heiður og viðurkenning ekki síst í ljósi þess hve verkefnið er ungt auk þess hve mikilvægt er að fá staðfestingu á því að starfið er á réttri leið.
Tryggvi Haraldsson, verkefnastjóri Atvinnutorgs sagði aðspurður um framtíð Atvinnutorgs að "Atvinnutorg stendur sterk t að vígi. Hér höfum við náð að virkja sköpunarmátt ráðgjafa sem hér starfa sem hafa mótað einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir unga atvinnuleitendur sem virkar. Það er mikið verk óunnið þar sem styðja verður fleira fólk út á atvinnumarkaðinn sem hefur lent í því að þurfa að sækja fjárhagslega aðstoð til Reykjavíkurborgar. Það að skylda fólk í atvinnuleit og hvetja það til dáða er eitthvað sem sífellt ætti að vera í mótun ekki síst fyrir þá sem eru undir þrítugu. Við megum ekki detta í þá gryfju að samþykkja það að fólk sem skilgreinir sig vinnufært fái fjárhagslega aðstoð sveitarfélagsins, öðruvísi en það sýni atvinnutengda virkni 2-5 sinnum í viku undir leiðsögn fagfólks. Ef ekki er leitast við að virkja vinnufært fólk verður fjárhagsleg birgði Reykjavíkurborgar gríðarleg í framtíðinni. Það er nánast öruggt", sagði Tryggvi að lokum.
Markmið allra þeirra sem koma að Atvinnutorgi er að sjálfsögðu að fækka ungu fólki á atvinnuleysisskrá og fjárhagsaðstoð um leið og að styrkja leit þeirra að námi eða vinnu við sitt hæfi.