Áskorun vegna deiliskipulags á Landsímareit

Skipulagsmál

""

BIN-hópurinn sem beitt hefur sér fyrir breytingum á framkominni deiliskipulagstillögu á Landssímareit afhenti Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs, áskorun við upphaf borgarráðsfundar í morgun þar sem tillagan var tekin til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt tillöguna, en 241 athugasemd bárust frá borgarbúum vegna hennar.

Áskorunin hljóðar svo:

1.     Við skorum á borgarráð að samþykkja að boða til aukafundar í borgarstjórn um fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu um Landssímareit og taka til efnislegrar umfjöllunar þær fjölmörgu athugasemdir sem bárust vegna hennar.

2.     Við skorum á borgarstjórn að láta fara fram íbúakosningu þar sem spurt yrði hvort íbúar Reykjavíkur séu hlynntir eða andvígir fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu um Landssímareit.