Á sumrin kemur mikill fjöldi erlendra ferðamanna í Ráðhúsið, meðal annars til að skoða Íslandskortið sem þar er, og gefst þessum gestum nú einnig kostur á að kynna sér bókmenntir sögueyjunnar í umgjörð íslenskrar hönnunar. Á sýningunni verður skáldskapur af öllum toga í brennidepli, svo og bækur um Ísland sem gefnar eru út hér á landi. Verk íslenskra höfunda koma nú út í þýðingum í vaxandi mæli víða um heim, en mikilvægt skref í því ferli var tekið með útgáfu um 200 íslenskra titla í Þýskalandi í tengslum við heiðurssess Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt árið 2011.
Í Ráðhúsinu verður einnig hægt að tylla sér á skáldabekk og hlusta á upplestur á íslenskum ljóðum og sögubrotum á ensku en Bókmenntaborgin hefur líka komið allnokkrum slíkum bekkjum fyrir úti í borgalandinu. Þá verður vakin athygli á því sem Bókmenntaborgin Reykjavík hefur upp á að bjóða fyrir erlenda ferðamenn, svo sem bókmenntagöngur, snjallsímaforrit, söfn og fleira.
Sýningarstjóri The Art of Being Icelandic er Ingi Thor Jónsson og hönnuður er Sigrún Gréta Heimisdóttir. Eins og áður sagði opnar sýningin föstudaginn 28. júní og stendur hún út júlímánuð. Ráðhúsið er opið frá kl. 8 til 19 virka daga og frá kl. 12 til 18 um helgar.
Samhliða sýningunni verður hádegisdagskrá í Munnhörpunni í Hörpu alla fimmtudaga í júlí en þar mun íslenskur höfundur spjalla við gesti á ensku og lesa úr eigin verkum. Andri Snær Magnason ríður á vaðið 4. júlí, þann 11. júlí spjallar Vilborg Davíðsdóttir við gesti, Auður Ava Ólafsdóttir þann 18. og Yrsa Sigurðardóttir rekur lestina 25. júlí. Þessi dagskrá er öllum opin og ekkert kostar inn, en gestir geta gætt sér á veitingum Munnhörpunnar á meðan þeir hlýða á höfundaspjallið. Bækur þessara höfunda verða til sölu og gestir geta því nælt sér í áritun höfundarins í leiðinni.