Aníta Hinriksdóttir, nýkrýndur heims- og Evrópumeistari í 800 metra hlaupi, hlaut í gær styrk frá íslenska ríkinu að upphæð tvær milljónir á ári sem renna til Afrekssjóðs Íþróttasambands Íslands til ársins 2016, samtals átta milljónir. Peningarnir eru eyrnamerktir Anítu sem tók við styrknum frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra í dag.
Sigmundur Davíð þakkaði Anítu fyrir það sem hún hefði gert fyrir Ísland og sagði hana góða fyrirmynd. Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að mikilvægt sé að styðja Afrekssjóðinn og Anítu þannig að hún geti helgað sig æfingum og keppni til undirbúnings á alþjóðlegum stórmótum.