Framkvæmdir í miðborginni voru kynntar í gær á opnum kynningarfundi og var þar almenn ánægja meðal fundargesta með fyrirhugaðar endurbætur. Borgarstjóri sagði mikilvægt að Reykjavíkurborg og rekstraraðilar stæðu saman um að senda skýr boð um að miðborgin væri opin og aðgengileg. Mikilvægt væri að vinna saman og hugsa í lausnum. Búið er að hafa margvíslegt samráð og enn er tími til stefnu, en verklegar framkvæmdir á Hverfisgötu og Frakkastíg hefjast ekki fyrr en í júlí.
Framkvæmdasvæði opið allan tímann
Gangandi og hjólandi munu komast um framkvæmdasvæðin allan tímann, en bílaumferð verður beint um hjáleiðir og aðgengi að bílastæðahúsum er opið. Framkvæmdir á Frakkastíg og á Hverfisgötu frá Vitastíg niður að Vatnsstíg hefjast í júlí, en neðar á Hverfisgötu, frá Vatnsstíg að Klapparstíg ekki fyrr en 26. ágúst.
Hjólastígar verða lagðir, gangstéttar endurnýjaðar, hitalögnum komið fyrir og grunnlagnir endurnýjaðar. Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds, sagði tímabært að endurnýja lagnir í Hverfisgötu, en sumar eru um 100 ára gamlar. Kostnaður veitufyrirtækjanna í heildarframkvæmdinni er áætlaður um 500 milljónir króna af heildarkostnaði sem verður um 1.600 milljónir króna.
Ámundi fór einnig yfir ýmis önnur verkefni sem eru á döfinni í miðborginni og má sjá myndræna framsetningu kynningar hans hér fyrir neðan.
Borg fyrir fólk
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- og skipulagssviðs, kynnti áherslur borgarinnar um hreina, fallega og skemmtilega miðborg þar sem lífsgæði og samfélag fá notið sín. Markmið eru að setja manneskjuna í öndvegi og forgangsraða í hennar þágu. Hún kynnti göngugötur sumarsins en þær verða Pósthússtræti frá 1. júní - 3. september; austasti hluti Hafnarstrætis 17. júní - 3. september; Laugavegur neðan Vatnsstígs 1. júní - 5. ágúst og Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis 1. júní - 5. ágúst. Akstur með aðföng verður mögulegur á morgnana, í Kvos frá 8 - 11 og á Laugavegi og Skólavörðustíg frá 8 - 12. Hugað verður að stæðum fyrir hreyfihamlaða og aðgengi neyðarbíla verður tryggt.
Ánægja og áhyggjur rekstraraðila
Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna Miðborgin okkar, sagði mikla ánægju vera ríkjandi með fyrirhugaðar endurbætur og ánægjulegt að borgin hefði að brugðist við ábendingum með jákvæðum hætti. Björn Jón Bragason, talsmaður hóps kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg, lýsti áhyggjum yfir því að framkvæmdirnar og opnun sumargatna hefði neikvæð áhrif. Hann taldi vanta meiri upplýsingagjöf og samráð.
Sverrir Þ. Sverrisson, formaður íbúasamtaka Miðborgar og einn fundargesta, sagði endurbæturnar vera löngu tímabærar. Það væri eins með þessar framkvæmdir líkt og þegar stofan heima væri máluð, rask meðan þær standa yfir en ánægjulegt þegar þeim væri lokið.
Nánari upplýsingar
Kynningar frá fundinum:
• Kynning á framkvæmdum í Miðborg 2013 - Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá umhverfis- og skipulagssviði
• Borg fyrir fólk – Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar
Upplýsingasíður í Framkvæmdasjá:
• Hverfisgata - endurgerð milli Klapparstígs og Vitastígs.
• Frakkastígur - endurgerð milli Njálsgötu og Skólavörðuholts.
• Klapparstígur - endurgerð neðan Hverfisgötu.