Bryddað hefur verið upp á nýbreytni við úthlutun veiðileyfa Reykjavíkurborgar í Elliðaánum síðustu sumur. Borgarstjóri, Jón Gnarr, rennir fyrir fyrsta laxinum á sumrin ásamt Reykvíkingi ársins og svo er óskaði eftir tilnefningum í 36 önnur veiðileyfi borgarinnar. Starfsmenn hvaðanæva að úr borgarkerfinu hafa verið tilnefndir og fengið að renna fyrir lax í ánum. Margir hafa því fagnað Maríulaxi með tilheyrandi uggabiti.
Hvunndagshetjur bættust svo í hóp veiðimanna í sumar en borgarbúar gátu sent tilnefningar um fyrirmyndarborgara. Í ár voru starfsmenn á kaffihúsinu GÆS meðal veiðimanna svo og Rebekka Hólm Halldórsdóttir sem stóð að söfnun fyrir utangarðsfólk.
Að sögn veiðivarða við árnar fengu flestir vænan lax með sér heim og allir höfðu af veiðinni gleði og ánægju.