Allt á fullu í snjóhreinsun

Áfram er lögð áhersla á að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum, sem og helstu göngu- og hjólaleiðum. Vel gengur miðað við aðstæður. Þeir sem sinna snjóruðningi ítreka að fólk leggi ekki af stað á vanbúnum bílum.



Það er í mörg horn að líta og hér er nokkur dæmi um  hver staðan er í borginni og við hvað er verið að fást:

1. Búið er að kveikja aftur á götulýsingu vegna veðursins. Það er svo dimmt yfir að við töldum þetta bæta öryggi.

2. Dráttavéladeildin er á gönguleiðunum og þeir leitast aðalega við að halda hjólaleiðum og forgangsleiðum á göngustígum opnum. Það reynist ekki auðvelt því það skefur stöðugt aftur en þeir munu halda áfram í allan dag við að halda þeim opnum. Magnaðir hjólreiðamennirnar að fara út í þessu veðri.!

3. Við erum að aðstoða starfsmenn heimahjúkrunar í efri byggðum að komast leiðar sinnar.

4. Kjalarnes.  Þar er ófært.  Allt stopp þar í augnablikinu en þeir eru að reyna að halda megin götuleiðinni opinni en það gengur mjög erfiðlega þar sem ekki sést varla út úr augum. Skólinn lokaður, enginn skólabíll og enginn strætó.

5. Breiðholt. Þar er lítið skyggni en ekki ófært. Engin bílar fastir en umferð er mjög hæg.

6. Grafarvogur.  Villt veður. Það er lítið hringt. Skefur jafnóðum og búið er að ryðja.

7. Allir hverfastöðvamenn og verktakar í stofnanalóðum, tröppum og strætóskýlum, Skefur jafnóðum og erfitt að vinna þar sem bílar eru stopp út um allt.

8. Gatnakerfið almennt þá eiga menn í mestu vandræðum með halda stofnæðum opnum. Það skefur mjög hratt og mjög blint en kannski ekki mjög mikil ofankoma. Efri byggðir eru mun verri heldur en vestan Elliðaráa. Vegagerðin er búin að loka sínum vegum út úr bænum. Menn komast lítið í húsagötur.

9. Allir ferðir Strætó utan höfuðborgarsvæðisins falla niður.



Um 64 tæki og mannskapur á þeim eru að störfum. Þetta eru 10 bílar og 20 vélar á götunum; 10 dráttavélar á gönguleiðum; 10 vélar á stofnanalóðum, tröppum og kringum strætóstöðvar og síðan eru 14 flokkabílar með mannskap á ferðinni.

Í Borgarvefsjánni > www.borgarvefsja.is > er tengill á ,,lifandi gögn“ efst í hægra horni og þar má sjá hvar búið er að ryðja.

Ábendingar um snjóruðning er gott að setja inn á ábendingavefinn www.reykjavik.is/borgarland og einnig kemur símaver ábendingum áleiðis.

Nánar um viðbragðsáætlun Reykjavíkurborgar > Snjóhreinsun og hálkueyðing.