Aldrei fleiri nemendur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn

Umhverfi Skóli og frístund

""

Í nýliðnum september komu 678 nemendur í skipulagða fræðslu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þá komu 240 nemendur til viðbótar úr 3. og 4. bekk grunnskóla og tóku þátt í Náttúruratleik 

Allt frá því að Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn var opnaður árið 1990 hefur þar verið starfrækt fræðsludeild. Fræðslufulltrúar garðsins hafa því tekið á móti mörgum nemendum á öllum aldri í skipulagt fræðslustarf þar sem dýr garðsins eru í aðalhlutverki. Í nýliðnum september komu 678 nemendur í skipulagða fræðslu og til viðbótar komu 240 nemendur úr 3. og 4. bekk grunnskóla í Náttúruratleik sem gerður var í samstarfi við Grasagarðinn í tilefni af Degi íslenskrar náttúru. Aldrei áður hafa jafn margir nemendur komið í september en gamla septembermetið er frá árinu 2011 þegar 487 nemendur sóttu sér fræðslu í garðinum.  
 
Nemendur sem hafa heimsótt garðinn í september með kennurum sínum eru á öllum stigum leik- og grunnskóla. Leikskólabörnin voru 242 og hafa aldrei verið fleiri. 
 
Ein ástæða þessarar aukningar á ungum gestum er samningur sem undirritaður var í sumar milli Fjölskyldu- og húsdýragarðsins (FHG), skóla- og frístundasviðs (SFS) og íþrótta- og tómstundasviðs (ÍTR) um samstarf á sviði náttúrufræðikennslu og frístundastarfs. Í samningum er formfest það mikla samstarf sem lengi hefur verið á milli garðsins og skóla- og frístundastofnana sem heyra undir SFS. 
 
Í samningnum felst meðal annars að leik- og grunnskólar borgarinnar, auk frístundaheimila, greiða ekki aðgangseyri í tengslum við skipulagt starf. Þá hefur gjaldtöku einnig verið hætt vegna námskeiða fyrir leik- og grunnskóla sem boðið er upp á í garðinum. 
 
Samningurinn er afrakstur starfshóps sem settur var á laggirnar í kjölfar samþykktar SFS- og ÍTR-ráða um aukið samstarf á þessu sviði. Helena Óladóttir frá SFS og Þorkell Heiðarsson frá ÍTR/FHG leiddu verkefnið. 
 
Áhugasamir kennarar eru hvattir til að hafa samband við fræðsludeild FHG á netfangið namskeid@husdyragardur.is fyrir frekari upplýsingar.