Aldrei betri árangur í stærðfræði

Skóli og frístund

""

Niðurstöður úr stærðfræðiskimun sem lögð var fyrir í 3. bekk reykvískra grunnskóla vorið 2012 sýna að færri nemendur en áður, eða 4,3%, teljast þurfa sérstakan stuðning í stærðfræði. Það er tveimur prósentustigum lægra hlutfall en á árinu 2011 og lægsta hlutfallið á tímabilinu 2007-2012. Þorri nemenda, eða 96%, teljast samkvæmt skimuninni ólíklegir til þess að þurfa stuðning í stærðfræðinámi.

Af þeim sem tóku prófið náðu 76% nemenda settu viðmiði í fyrsta þrepi skimunarinnar, um 14% náðu settu viðmiði í öðru þrepi og eru því ekki heldur líklegir til að þurfa sérstakan stuðning í stærðfræði. Um 10% nemenda fóru í gegnum alla skimunina en eins og áður segir voru nemendur sem töldust að lokum þurfa sérstakan stuðning vera rúm 4%.  

Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, segir þessar góðu niðurstöður ríma við aðrar mælingar á árangri skólabarna í Reykjavík undanfarin misseri. “Árangur hefur batnað á langflestum sviðum, líðan nemenda er betri, einelti hefur minnkað og ánægja foreldra er meiri. Það má þakka öflugum og metnaðarfullum kennurum fyrir sinn þátt í þessum árangri. Góðir kennarar skapa gott skólastarf og reykvískir kennarar setja velferð og framfarir nemenda sinna í fyrsta sæti.”

Sjá könnunina Talnalykil.