Áhugi fyrir görðum í Háaleitis og Bústaðahverfi

Umhverfi Skipulagsmál

""

Nýir garðar og endurbætur á eldri görðum eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Háaleitis og Bústaðahverfi völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra.  Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.



Óskir íbúa í Háaleiti og Bústöðum beindust einkum að útivist og bættu umhverfi, en einnig var leiksvæði fyrir börn og fullorðna á óskalistanum. 

  1. Göngustígur og leiksvæði fyrir ofan Kvistaborg var lagfært.

     
  2. Sett upp timburgirðing meðfram leiksvæði við Austurborg.

     
  3. Gangstétt við vestanverða Háaleitisbraut milli Austurvers og Listabrautar var lagfærð.

     
  4. Útivistarsvæði í austanverðum Fossvogsdal var lagfært og fegrað m.a. með gróðursetningu.

     
  5. Í Grundargerðisgarði voru settur bekkur og bætt við gróður.

     
  6. Göngustígur frá Háagerði að þjónustuíbúðum við púttvöll var malbikaður.

     
  7. Áningarstaðir með bekkjum voru settir upp við hituveitustokkinn.

     
  8. Hverfisgarður var útbúinn vestan Grensáskirkju.

     
  9. Leiksvæði í Ásgarði var snyrt og leiktæki lagfærð.

     
  10. Endurnýjuð leiktæki og körfuboltavöllur við Háaleitisskóla.

     
  11. Útivistaraðstaða var bætt í garði milli Hæðargarðs og Hólmgarðs.

     
  12. Umhverfi leikskólans Garðaborgar var snyrt.

     
  13. Endurnýjaðar voru merkingar við Hákonarlund.

     



Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Háaleitis- og Bústaðhverfi var í fyrra um 34 milljónir króna og verður það óbreytt í ár.  Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.  



Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundur með íbúum í Háaleitis og Bústaðahverfi verður mánudaginn 21. janúar  kl. 17 í Réttarholtsskóla.