Hvernig hefur ný byggingarreglugerð áhrif á uppbyggingu leigumarkaðar og framboð lítilla íbúða á höfuðborgarsvæðinu? Þessari spurningu verður svarað á málþingi sem Reykjavíkurborg stendur fyrir í samvinnu við Mannvirkjastofnun og fleiri aðila.
Málþingið verður haldið fimmtudaginn 12. desember kl. 13 – 16 í Borgartúni 12 – 14 í húsakynnum Reykjavíkurborgar við Höfðatorg. Auk Mannvirkjastofnunar og Reykjavíkurborgar hafa framsögu fulltrúar frá Búseta, Félagsstofnun stúdenta, Félagsbústöðum og Samtökum iðnaðarins. Að loknum framsögum verða pallborðsumræður.
Málþingið er öllum opið og ókeypis. Skráningu skal senda á netfangið maria.nielsdottir@reykjavik.is eða sea@reykjavik.is
Nýju Reykjavíkurhúsin og Reykjavíkuríbúð 21. aldarinnar
Reykjavíkurborg hefur stofnað til mikils og öflugs samstarfs um uppbyggingu leigumarkaðar og þróun nýrra valkosta í hönnun íbúða. Tvö tengd verkefni, Reykjavíkurhúsin annars vegar og Reykjavíkuríbúð 21. aldarinnar hins vegar, steyta á ákvæðum hinnar nýju byggingarreglugerðar og er það aðalhvatinn fyrir málþinginu.
Verkefnið Reykjavíkurhúsin snýst um uppbyggingu hagkvæmra og áhugaverðra fjölbýlishúsa þar sem félagsleg blöndun er tryggð. Stefnt er að byggingu 400 – 800 íbúða í 15 – 30 húsum á næstu þremur til fimm árum. Reykjavíkurborg hefur efnt til samstarfs Félagsbústaða, Félagsstofnunar stúdenta, Búseta, byggingarfélags fatlaðra og aldraðra, auk annarra farsælla uppbyggingaraðila á húsnæðismarkaði um þetta verkefni.
Verkefninu Reykjavíkuríbúð 21. aldarinnar var nýverið hleypt af stokkunum í samstarfi við Hönnunarmiðstöð og Samtök iðnaðarins, auk virks samráðs við fagfélög og þverfagleg teymi. Verkefnið er skilgreint sem hugmyndavettvangur sem mögulega leiði til hugmyndasamkeppni. Opna á fyrir þróun í skipulagi íbúðahverfa, íbúðarhúsa og innra fyrirkomulagi þeirra. Mæta á þörf fyrir vistvænni, samfélagsmeðvitaðri og framsæknari búsetukostum í þéttbýli.