Áhersla á að ryðja snjó á meginleiðum
Mikill snjór hefur fallið í Reykjavík og hafa öll tæki og bílar verið að síðan þrjú í nótt. Leitast er við að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum og að fólk komist inn á bílastæði við grunnskóla og leikskóla.
Loka þurfti Víkurvegi í morgunsárið en þar er mjög slæmur staður í svona veðrum, fljótt myndast stórir skaflar þar. ,,Þar varð árekstur áðan og því ekki hægt að moka og allt orðið stopp þar strax“, segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir, skrifstofustjóri rekstrar og þjónustu hjá Reykjavíkurborg. Vindurinn setur strik í reikninginn og það er fljótt að skafa í skafla á ákveðnum stöðum eftir að mokað er. ,,En það eru allir úti að vinna að gera sitt besta“, segir hún. Veðrið fer versnandi og hvetur Guðjóna fólk til að skoða vel aðstæður áður en það heldur af stað, jafnvel halda sig heima sé þess kostur og alls ekki að fara af stað á vanbúnum bílum.
Ábendingar um snjóruðning er gott að setja inn á ábendingavefinn www.reykjavik.is/borgarland og einnig kemur símaver ábendingum áleiðis.
Nánar um viðbragðsáætlun Reykjavíkurborgar > Snjóhreinsun og hálkueyðing.