Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – september 2013 var lagður fram í borgarráði í dag, fimmtudaginn 28. nóvember. Niðurstaðan sýnir að reksturinn er að styrkjast talsvert og er rekstur samstæðunnar, A og B hluta, jákvæður um rúma sjö milljarða króna. Rekstur A-hluta er jákvæður upp á tæpar 150 milljónir króna en innan hans er öll kjarnastarfsemi Reykjavíkurborgar.
Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 7.225 milljónir króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á tæpa fimm milljarða króna. Rekstrarniðurstaðan er því 2.3 milljörðum betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þennan viðsnúning má rekja til þess að tekjur aukast en þær voru rúmum milljarði króna umfram áætlun og matsbreytingum fjárfestingareigna, upp á tæpar 1.3 milljarða króna. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 15.519 mkr sem er 1.835 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir og 2.191 mkr betri afkoma en á sama tíma árið 2012. Niðurstaðan sýnir svo ekki verður um villst að rekstur samstæðunnar er að styrkjast.
Rekstur A-hluta jákvæður um 146 mkr.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 146 mkr en gert var ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 677 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því betri en gert var ráð fyrir, sem nemur 823 mkr. sem rekja má til hærri skatttekna, annarra tekna og minni hækkunar útgjalda. Rekstrarniðurstaða tímabilsins var 227 mkr betri en á sama tíma árið 2012. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 402 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 371 mkr. Niðurstaðan er því 773 mkr betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabilsins samtals 475 milljörðum króna en heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 303 milljarðar króna. Eigið fé var 172 milljarðar króna en þar af nam hlutdeild meðeigenda 8.7 milljörðum króna.
Fjárhagslegur styrkur mikill
Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Eiginfjárhlutfall, skuldsetningarhlutfall og sjóðstreymi samstæðunnar er einnig að styrkjast.
Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Stærstu fyrirtæki B- hluta eru Orkuveita Reykjavíkur, Félagsbústaðir hf., Faxaflóahafnir sf. og byggðasamlögin Sorpa bs., Strætó bs og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.