Breytendur - Changemaker in Iceland er ungliðahreyfing sem hefur það að markmiði að bæta heiminn með jákvæðum og raunhæfum aðgerðum. Meðlimir hópsins hittu Jón Gnarr borgarstjóra í morgun og ræddu um sorphirðu og nauðsyn þess að auðvelda flokkun sorps.
Jón Gnarr borgarstjóri tók við undirskriftum frá meðlinum ungliðahreyfingarinnar Breytendur - Changemaker á Íslandi, en um er að ræða hreyfingu sem hefur það að markmiði að gera heiminn að betri stað með jákvæðum og raunhæfum aðgerðum.
Í sumar ákvað hópurinn að gera sorphirðumál Reykjavíkurborgar að umfjöllunarefni sínu, og benda á það sem betur mætti fara. Þau segja nauðsynlegt að fjölga valmöguleikum við flokkun á sorpi sem aftur muni skila sér í betri lífsgæðum til borgarbúa og bættum fjárhag sveitarfélagsins.
Borgarstjóri hitti ungmennin ásamt Ellý Katrínu Guðmundsdóttur, borgarritara og ræddu þau um sorphirðumál. Jón fagnaði komu ungmennanna og sagði ánægjulegt að sjá áhuga þeirra fyrir jafn brýnu verkefni og sorphirða er. Hann benti á að bláa tunnan væri eitt nýjasta skrefið til að auðvelda borgarbúum að flokka og að verið væri að skoða fleiri möguleika í flokkun á rusli. Borgarstjóri benti ennfremur á að borgin stæði sjálf fyrir verkefninu Græn skref sem á að auðvelda stofnunum og fyrirtækjum að verða umhverfisvænni í rekstri sínum.
Breytendur söfnuðu undirskriftum á endurnýttar mjólkurfernur í sumar og sögðu listann vera táknrænt gildi um almennan vilja flestra borgarbúa um auðveldari endurvinnslu. Þau afhentu borgarstjóra listann sem ætlaði að koma honum í hendur réttra aðila hjá Reykjavíkurborg og þakkaði þeim fyrir komuna.
Heimasíða ungliðahópsins Breytendur - Changemaker á Íslandi: http://changemaker.is/web/?page_id=14