Börnin í leikskólanum Hofi fögnuðu á dögunum aðventunni með jólastund úti í garði.
Þar sungu þau jólalögin og og hlustuðu á jólasögur. Þá var kveikt upp í eldi á útieldstæðinu og hitaður eplasafi með kanilstöngum sem neytt var með bestu lyst. Börnin létu kulda og snjó ekki á sig fá og nutu stundarinnar enda gætir vaxandi eftirvæntingar í barnahópnum nú þegar jólin nálgast.