Aðgerðaráætlun gegn hávaða

Skipulagsmál Samgöngur

""

Samkvæmt reglugerð nr. 1000/2005 ber Reykjavíkurborg að auglýsa aðgerðaáætlun gegn hávaða og kynna hana með almennum hætti í sveitarfélaginu. Reglugerðin byggir á tilskipun 2002/49/EB um mat og stjórn á hávaða í umhverfinu.

Aðgerðaáætlunin er byggð á niðurstöðum kortlagningar hávaða frá árinu 2012, ásamt hávaðakortum. Áætlunin hefur það að markmiði að draga úr hávaða og óæskilegum áhrifum hans.

Borgarbúum og öðrum hagsmunaaðilum er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við áætlunina. Athugasemdir skulu berast umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14 eða á netfangið upplysingar@reykjavik.is fyrir 16. desember 2013. Nánari upplýsingar veitir Stefán Agnar Finnsson yfirverkfræðingur, stefan.agnar.finnsson@reykjavik.is.

Aðgerðaáætlunin verður til kynningar í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, frá 18. nóvember til 16. desember 2013.

Að kynningu lokinni verða athugasemdir teknar til umfjöllunar og tekið tillit til þeirra eftir atvikum. Öllum athugasemdum verður svarað. Endanleg áætlun verður svo afgreidd af borgaryfirvöldum.

Aðgerðaáætlun: http://reykjavik.is/sites/default/files/adgerdaaaetlun_rvk_14_11_2013.pdf

Hljóðvistarkort: 

Reykjavík vesturhluti, http://reykjavik.is/sites/default/files/vesturhluti_havadakort_loka.pdf

Reykjavík austurhluti, http://reykjavik.is/sites/default/files/austurhluti_havadakort_loka.pdf

Frekari upplýsingar má finna á vef Umhverfisstofnunar:

http://www.ust.is/einstaklingar/graenn-lifsstill/havadi/