Aðstæður fyrir vegfarendur á Hverfisgötu batna dag frá degi og í morgun var verið að malbika hjólastíga fyrir framan Bíó Paradís. Í dag verður sandað og þjappað yfir snjóbræðslulagnir svo vegfarendur eigi enn greiðari aðgang að verslun og þjónustu á Hverfisgötu.
Mikil áhersla er lögð á að gera gönguleiðir og akstursleiðir eins greiðar og kostur er. Gangandi vegfarendur komast alla götuna og leiðir eru greiðar í bílastæðahús, bæði Traðarkot og Vitatorg.
Skoða kort með gönguleiðum og akstursleiðum á Hverfisgötu.
Á morgun verður opnað fyrir bílaumferð af Laugavegi niður Vatnsstíg og áfram niður Hverfisgötu. Um leið og veður gaf fyrr í vikunni var hitaveitulögn ofan við Klapparstíg soðin saman og í framhaldi var hægt að fylla að henni.
Í fyrramálið munu starfsmenn Reykjavíkurborgar svo hefjast handa við að setja upp jólaljósaskreytingar í þessari gamalgrónu og gegnu verslunargötu.
Styst á veg komið við Frakkastíg
Verslunarmenn hafa gagnrýnt borgina fyrir seinkun framkvæmda en til stóð að þeim lyki í nóvember. Það gekk ekki eftir af ýmsum ástæðum svo sem seinlegri lagnavinnu. Framkvæmdir eru styst á veg komnar á gatnamótum Hverfisgötu og Frakkastígs en þar var orðið við óskum um að hefja framkvæmdir síðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Eðlilega seinkar verklokum í samræmi við það og endanlegum frágangi á þessum gatnamótum lýkur ekki fyrr en í janúar. Gönguleiðum verður haldið opnum um framkvæmdasvæðið.
Tengt efni: Skoða kort með gönguleiðum og akstursleiðum á Hverfisgötu.
Tengd frétt: Snjóbræðsla sett í Hverfisgötu.