Tillaga að aðalskipulagi Reykjavíkur hefur verið sett í auglýsingu frá og með 9. ágúst og stendur hún yfir til 20. september 2013 líkt og samþykkt var í Borgarstjórn Reykjavíkur fyrr í sumar. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna og skal athugasemdum við tillöguna skilað til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls lands Reykjavíkur og í því birtist stefna borgarinnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál, þróun byggðar og byggðamynstur til ársins 2030. Í aðalskipulaginu eru jafnframt forsendur fyrir gerð hverfis- og deiliskipulags. Aðalskipulag tekur ekki gildi fyrr en eftir lokasamþykki borgarstjórnar og staðfestingu Skipulagsstofnunar eða umhverfisráðuneytis.
Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur tekur til tímabilsins 2010 - 2030 og er endurskoðun á aðalskipulaginu 2001 - 2024. Endurskoðunin hefur staðið yfir undanfarin ár og hefur falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati valkosta og samráði við íbúa og hagsmunaaðila.
MEGINBREYTINGAR
Meginbreytingar frá gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur felast í nokkrum þáttum. Nefna má þétta og blandaða byggð en gert er ráð fyrir að um 90% allra nýrra íbúða rísi innan núverandi þéttbýlismarka í stað 50% áður, þá verða settir skilmálar um eflingu verslunar og þjónustu innan íbúðarhverfa. Áhersla er lögð á að fjölga íbúum á svæðum þar sem mikið framboð starfa er fyrir og að fjölga störfum þar sem lítið framboð er fyrir. Þá eru settir fram skilmálar um eflingu verslunar og þjónustu innan íbúðarhverfa.
Vistvænar samgöngur verða hátt skrifaðar í Reykjavík og verður samgöngukerfi fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur styrkt. Markviss bíla- og hjólastæðastefna er sett fram sem mun ýta undir breyttar ferðavenjur borgarbúa. Stefnan er að draga úr vegalengdum, ferðaþörf og nýta til fullnustu núverandi gatnamannvirki. Áætlun um endurhönnun helstu gatna er einnig sett fram í aðalskipulaginu.
Skil milli útivistarsvæða og þéttbýlis eru skerpt í tilögunni. Útivistarsvæði innan hverfa eru fest í sessi samhliða þéttingu byggðar. Þá verður tryggt framboð á minni og stærri íbúðum í fjölbýli og sérbýli til að tryggja félagslega fjölbreytni innan hverfanna. 25% nýs húsnæðis tekur mið af þörfum þeirra sem ekki vilja eða geta lagt mikið fé í eigið húsnæði.
Stórar landfyllingar ætlaðar undir blandaða byggð eru felldar út úr aðalskipulagi í kjölfar stefnu um betri landnýtingu íbúðarbyggðar. Loks má nefna að í aðalskipulaginu eru settar fram sérstakar stefnur um hæðir húsa, borgarvernd, kaupmanninn á horninu, götuna sem borgarrými, gæði byggðar og miðborgina sem verða leiðarljós við gerð hverfis- og deiliskipulags í borginni.
Athugasemdir Skipulagsstofnunar, dagsettar 16. júlí 2013, eru lagðar fram með aðalskipulagstillögunni, ásamt viðbrögðum Reykjavíkurborgar við þeim, dagsettum 22. júlí 2013.
ÁBENDINGAR OG ATHUGASEMDIR
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu og öðrum fylgigögnum liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12 - 14, 1. hæð, virka daga kl. 8.20 - 16.15, frá 9. ágúst 2013 til og með 20.september 2013. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu er einnig til sýnis á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 3. hæð. Tillöguna og önnur kynningargögn má nálgast á vefsvæðinu adalskipulag.is
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12 - 14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, ekki síðar en 20. september 2013.
AÐGENGILEGT KYNNINGARRIT
Nýtt og aðgengilegt kynningarrit á íslensku og ensku hefur verið gefið út en þar er sagt frá öllum helstu atriðum aðalskipulagsins. Ritið er 60 síður í A5 broti. Ritið er hægt að nálgast í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni og Ráðhúsi Reykjavíkur ásamt fleiri völdum stöðum en einnig á netinu á adalskipulag.is.
Tengill
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010 - 2030 tillaga.
Aðalskipulag Reykjavíkur - kynningarrit ISSUU.
Reykjavik Municipal Plan 2010 - 2030 (proposal).