Aðalskipulag Reykjavíkur: Athugasemdir frá um 200 aðilum bárust

Skipulagsmál

""

Tæplega 200 aðilar gerðu athugasemd við tillögu að aðalskipulagi Reykjavíkur sem var í auglýsingu frá 9. ágúst til 20. september 2013 en þeir sem töldu sig eiga hagsmuna að gæta voru hvattir til að kynna sér tillöguna og skila athugasemdum. Átta umsagnir bárust einnig frá opinberum aðilum.

Það voru einstaklingar, fyrirtæki, íbúasamtök, félagasamtök og hópar sem stóðu að undirskriftasöfnunum sem sendu athugasemdir. Um þriðjungur athugasemda varðar skipulag Vatnsmýrar en aðrar athugasemdir fjalla meðal annars um þéttingu byggðar í Ártúnsholti, breytingar skipulags í Úlfarsárdal, reiðleiðir og landnotkun Keldna.

Athugasemdirnar verða til skoðunar og umræðu hjá borgaryfirvöldum á næstu vikum þar sem metið verður hvort og þá hvernig brugðist verður við þeim.

Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur tekur til tímabilsins 2010–2030 og er endurskoðun á aðalskipulaginu 2001–2024. Til samanburðar má nefna að 49 aðilar sendu athugasemdir við aðalskipulagið sem nú er í gildi þar af tveir undirskriftarlistar varðandi Reykjavíkurflugvöll og landfyllingu við Ánanaust.

Endurskoðunin hefur staðið yfir undanfarin ár og hefur falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati valkosta og samráði við íbúa og hagsmunaaðila.

Hér fyrir neðan eru ítarlegar upplýsingar um aðalskipulagið.

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010 - 2030 tillaga

Aðalskipulag Reykjavíkur kynningarrit

Reykjavík Municipal Plan 2010 - 2030 English