Aðalfundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholts fer fram í Gerðubergi í kvöld, fimmtudaginn 21. nóvember, kl. 20:00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, en auk þess mætir Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri á fundinn og skýrir frá Breiðholtsverkefninu og gangi þess.
Aðalfundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholts fer fram í Gerðubergi í kvöld, fimmtudaginn 21. nóvember, kl. 20:00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, en auk þess mætir Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri á fundinn og skýrir frá Breiðholtsverkefninu og gangi þess. Hverfisráði Breiðholts hefur verið boðið að sitja fundinn. Fundarstjóri er Arnar Snæberg Jónsson frístundaráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts.
Íbúar í Breiðholti eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.