9. bekkingar ræða forvarnir

Skóli og frístund Mannlíf

""

Forvarnardagurinn var haldinn í grunnskólum borgarinnar í dag. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum. 9. bekkingar leystu ýmiss verkefni í tilefni dagsins og skeggræddu við gesti, s.s. forseta Íslands, borgarstjóra og fulltrúa í skóla- og frístundaráði. 

Ólafur Ragnar Grímsson forseti heimsótti nemendur í Rimaskóla í tilefni forvarnardagsins, kynnti sér aðgerðir skólans til að uppræta einelti og kennslu í byrjendalæsi. Þá átti hann góðan fund með nemendum á unglingastigi.

Jón Gnarr borgarstjóri heimsótti nemendur í Ingunnarskóla og ræddi við þá um áfengislausan lífsstíl og leiðir til að sporna gegn áfengismenningu. Nemendur spurðu borgarstjóra spjörunum úr um reynslu hans af einelti, fortíð hans sem pönkara og um borgarstjórastarfið.

Fulltrúar í skóla- og frístundaráði heimsóttu Foldaskóla og fylgdust með umræðum 9. bekkingar um forvarnir. Þar kom m.a. fram að ein helsta skýringin á áfengisneyslu og reykingum unglinga má finna í hópþrýstingi. 

Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna.

Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt.

Á heimasíðu forvarnardagsins má finna myndbönd og verkefni er tengjast deginum