8. bekkingum boðið upp á spennandi frístundastarf í sumar
Reykjavíkurborg verður með fleiri tilboð í frístundastarfi fyrir unglinga í 8. bekk í sumar en fæstir þeirra fá vinnu yfir sumarmánuðina. Meðal þess sem í boði verður fyrir þá í félagsmiðstöðvunum er hópastarf og ýmis námskeið. Einnig verður félagsmiðstöðvastarf í boði fyrir 9. og 10. bekkinga. Þessi viðbót í starfi félagsmiðstöðvanna treystir jafnframt starfsumhverfi frístundaráðgjafa allt árið um kring. Unglingaráðin í hverfum borgarinnar munu taka þátt í að skipuleggja starfið þannig að unglingar móti sjálfir innihaldsríkan og skemmtilegan frítíma fyrir sig og jafnaldra sína.
Sumarfrístund í öllum hverfum borgarinnar
Eins og undanfarin sumur verður boðið upp á sumarfrístund fyrir 6 - 9 ára börn í Reykjavík, frá skólalokum í júní og fram að skólabyrjun í ágúst. Sumarfrístund verður starfrækt á 24 stöðum í borginni og verður sumarleyfi þar ýmist í þrjár eða fjórar vikur.
Félagsmiðstöðvarnar bjóða líka upp á fjölbreytt starf fyrir 10-12 ára börn og unglinga í sumar, s.s. námskeið og klúbbastarf. Áhersla verður sem fyrr á útivist, virkni og þátttöku barna og unglinga í skemmtilegum viðfangsefnum.
Sköpun, smíðar og útivist
Boðið verður upp á skapandi smíða- og útivistarnámskeið fyrir 9 - 12 ára börn í öllum hverfum borgarinnar og stendur hvert námskeið í eina viku. Viðfangsefnin verða margvísleg, fjölbreytt smíðaverkefni sem reyna á huga og hönd, auk styttri ferða.
Brúðubíllinn verður með sýningar eins og s.l. sumur og fer vítt og breitt um borgina.
Innritun í sumarfrístund og sumarstarf skóla- og frístundasviðs hefst 29. apríl og fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.