700 völdu lit á hjólahlið
Haldin var kosning á Facebook síðu Reykjavíkurborgar um lit á tveimur nýjum hjólahliðum sem komið verður upp vegna sumargatna í miðborginni. Hægt var að velja á milli fjögurra lita en þeir voru ferskjurauður, sólblómagulur, himinblár og tyggjóbleikur. Langflest, samtals 291 atkvæði hlaut sólblómagula hjólið en það tyggjóbleika næstflest. Miðborgin verður einstaklega litrík í sumar skreytt grænum, gulum og bleikum hjólahliðum, sumarblómum, útibekkjum og borðum sérstaklega til þess að skapa umgjörð fyrir mannlíf og stemningu.
Laugavegurinn verður göngugata frá Vatnsstíg og Skólavörðustígur frá Bergstaðastræti í sumar. Kvosin mun að sama skapi vera mestmegnis tileinkuð gangandi og hjólandi vegfarendum líkt og undanfarin sumur. Hjólahliðunum verður komið upp í vikunni en laugardaginn 1. júní verða sumargötur í Reykjavík formlega opnaðar.