70 ára Reykvíkingar heiðraðir
Liðlega 450 manns sóttu móttöku til heiðurs 70 ára Reykvíkingum í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Jón Gnarr, borgarstjóri, hélt stutt ávarp í upphafi móttökunnar þar sem hann rifjaði hann upp helstu viðburði á fæðingarári gestanna, árið 1943. Meðal þess sem fram kom í ræðu borgarstjóra var að árið var afar umbrotamikið, stríðsátök voru í Evrópu og breskt herlið hafði numið land á Íslandi. " Í janúar árið 1943 auglýsti Grænmetisverzlun ríkisins að framvegis myndi verslunin alls ekki úthluta ávöxtum handa sjúklingum nema gegn lyfseðlum. Sjúklingar þurftu að framvísa skilríkjum og skyldu læknar taka greinilega fram á lyfseðlum hvaða tegund ávaxta viðkomandi sjúklingur nauðsynlega þarfnaðist.
Áfengisverslun ríkisins óskaði eftir tveimur duglegum stúlkum til vinnu við flöskuþvott og Hafliðabúð auglýsti viðgerðir á nælonsokkum. Búðin lofaði fljótri afgreiðslu og vandaðri vinnu. Aðeins var tekið við þvegnum sokkum", sagði borgarstjóri.
Að lokum fór borgarstjóri með ljóðið Austurstræti eftir Tómas Guðmundsson. Boðið var upp á léttar veitingar. Gestirnir kunnu vel að meta að koma í Ráðhúsið til að hitta vini og kunningja og spjalla saman. Reykjavíkurborg óskar afmælisbörnunum til hamingju með sjötugsafmælið.