62% aukning á pappír í bláu tunnuna

Umhverfi

""

Hlutfall pappírs í gráu tunnunni í Reykjavík hefur snarminnkað á einu ári eða eftir breytingu á sorphirðunni sem fólst í að nú má ekki lengur setja pappír í gráu tunnuna. Pappír var 21% af blönduðum úrgangi í nóvember 2012, en er komin niður í 8% í nóvember á þessu ári. Fjöldi blárra tunna í Reykjavík hefur aukist úr 4.000 í rúmlega 11.000 síðan átakið hófst.

„Borgarbúar hafa tekið bláu tunninni mjög vel og hún skiptir sköpum í þessum málaflokki,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá Reykjavíkurborgar. 62% aukning er á pappír í bláu tunnunum því 280 tonn af pappír rötuðu í síðasta mánuði í bláu tunnuna hjá Reykjavíkurborg í samanburði við 106 tonn í nóvember 2012 en það samsvarar heilli Laugardalslaug. Á sama tíma dróst magnið sem fór í gráu tunnuna undir blandaða úrganginn úr 1.740 tonnum í nóvember 2012 í 1.390 tonn í nóvember í ár.

Athygli vekur að fernur skila sér ekki í eins ríkum mæli og aðrir pappírsflokkar, sem eru: dagblöð og tímarit, sléttur pappír, pappi, skrifstofupappír. Plasttappar á fernum mega fara með í bláu tunnuna og grenndar- og endurvinnslustöðvar því plastið er skilið frá og fer í endurvinnslu.

Þrátt fyrir að mun fleiri flokki núna eru gæðin jafngóð og áður. Það er hending ef eitthvað annað en pappír slæðist með. „Borgarbúar vanda sig greinilega vel við flokkunina,“ segir Eygerður. Mörg heimili í Reykjavík ættu að kanna hvort ástæða er til að vera með fleiri en eina bláa tunnu því starfsfólk sorphirðunnar hefur bent á að þær eru oft yfirfullar. Íbúar geta á móti skilað inn gráum tunnum og sparað þannig sorphirðugjöld því bláa pappírstunnan er ódýrari en sú gráa undir blandaða úrganginn. Íbúar geta einnig brugðist við meiri pappírsaustri yfir hátíðirnar með því að skila pappírnum á grenndar- eða endurvinnslustöðvar.

ALLUR JÓLAPAPPÍR  Í BLÁU TUNNUNA.

Allan jólapappír sama hvernig hann er á litinn má nú setja í bláu tunnuna en ganga þarf úr skugga um að sannarlega sé um pappír að ræða.