17. Stórmóti ÍR lokið, frábær árangur á seinni degi, 2 ný Íslandsmet!
17. Stórmóti ÍR lokið, frábær árangur á seinni degi, 2 ný Íslandsmet!
Ljóst er að Aníta Hinriksdóttir hefur unni hug og hjörtu áhorfenda og annarra íþróttamanna og fær hún óskipta athygli þeirra þegar hún tekur á rás. Aníta setti enn eitt Íslandsmetið í fullorðinsflokki þegar hún hljóp 1500m á 4:19,57 mín og bætti met Ragnheiðar Ólafsdóttur FH um tæpar 2 sekundur en það met er komið til ára sinna, sett 1. febrúar 1981 í Dortmund í Þýskalandi. Árangurinn gefur Anítu 1073 IAAF stig. Lágmarkið á EM innanhúss í Gautaborg í mars er 4:19.00 mín en þar er hún er með lágmark í 800m.
Gríðarleg barátta var í 400m hlaupi karla sem endaði með því að Kolbeinn H. Gunnarsson UFA sigraði á nýju glæsilegu Íslandsmeti 48,03 sek en Ívar Jasonarson IR varð 2. á 48,06 sek sem er þriðji besti tími Íslendings í 400m innanhúss þessir tímar gefa um yfir 1045 IAAF árangursstig. Þess má sannarlega geta að lágmarkið á EM innanhúss er 48 sek sléttar þannig að strákarnir eru báðir alveg við þröskuldinn. Snorri Sigurðsson ÍR varð þriðji á 50.08 sek sem einnig er fínn tími.
Hlynur Andrésson íR sigraði einnig í 1500m í dag og háði harða keppni við Færeyskan hlaupara en Arnar Pétursson ÍR kom fast á hæla þeim í 3. Sæti. Hlynur hljóp á 4:05.84 mín en Arnar á 4:10,06 mín, bæting hjá þeim báðum. Bjarki Gíslason UFA sigraði í stangarstökki karla og Mark W. Johson varð 2. með 4,80 m. Börkur Smári Kristinsson snéri aftur til keppni í vetur eftir um 1 árs fjarveru og stökk hann 4.30m og varð í 4. sæti. Hafdís Sigurðardóttir UFA sigraði með yfirburðum í 400m hlaupin kvenna á 56,04 sek. Fengið af www.ir.is.