1.300 börn frumflytja tónverk við opnun Barnamenningarhátíðar 2013

Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður sett með pompi og prakt þriðjudaginn 23. apríl. Hún er nú haldin í þriðja sinn og stendur fram til 28. apríl 2013. Markmið hátíðarinnar er að efla menningarstarf fyrir og með börnum og ungmennum í borginni, lyfta barna- og unglingamenningunni á stall og gera hana öllum sýnilega. 

Hátíðin hefst á litskrúðugu opnunaratriði í Eldborgarsal Hörpu  þriðjudaginn 23. apríl klukkan 11.00.  Þar munu 1.300 nemendur í fjórða bekk í grunnskólum Reykjavíkur flytja saman tónverk sem tónskáldið Áki Ásgeirsson hefur samið og er eldfjörugt og sjónrænt þátttökutónverk. Verkið heitir 268° og sækir innblástur sinn í tölvuleikjamenninguna. Börnin munu flytja verkið klædd í mismunandi lituð föt. Eftir það stígur poppstjarnan Páll Óskar á stokk og kemur krökkunum í stuð.

Hátíðin heldur svo áfram allan daginn í Hörpu. Klukkan 13.00 koma 400 leikskólabörnin úr 20 leikskólum í hús og flytja ásamt nemendum úr Tónskóla Sigursveins og Hamrahlíðarkórnum Snert Hörpu mína himinborna dís og gömul og ný lög eftir Atla Heimir Sveinsson

Klukkan 15.00 hefst dagskráin Tónheimili- tónlistarsmiðja frístundaheimila Kamps og kl. 16.30 verður Upptakturinn veittur, en það eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna.

Kl. 18.00 hefjast svo barnatónleikar Lúðrasveitar verkalýðsins og skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts.  Kl. 20.00 kynna nemendur og kennarar Listdansskóla Íslands dansinn sem

listform, ólíka stíla eins og klassískan ballett og nútímadans. 

Unglingarnir slá botninn í dagskrána fyrsta dag Barnamenningarhátíðar með

Stórtónleikum í Norðurljósasalnum kl. 20:00. Þar verður m.a. sýnd heimildarmynd um  tónleikaröðina Drullumall og svo koma fram hljómsveitirnar Meistarar Dauðans, Captain Fufanu og Vök sigursveit Músiktilrauna 2013. 

Nánari upplýsingar á barnamenningarhatid.is.